Íbúasamtök Smárahverfis

júlí 24th, 2009 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Betri Nónhæð eru íbúasamtök í Smárahverfi í Kópavogi sem voru stofnuð 9. ágúst 2007 vegna þeirra breytinga sem átti að gera á Nónhæð efst í Smárahverfi.

Samtökin hafa verið virk í upplýsingagjöf til íbúa og komið sjónarmiðum íbúa á framfæri við skipulagsyfirvöld og bæjaryfirvöld í Kópavogi.

Athugasemdir vegna sorpflokkunar

september 2nd, 2010 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Eins og flestir íbúar Nónhæðar hafa tekið eftir hefur mikill flugnafaraldur geysað í sorptunnum íbúa. Þar sem almennt sorp er geymt í mánuð og oft í hirslum innandyra (til dæmis í fjölbýlum Arnarsmára) hefur það gefið ávaxtaflugum tækifæri til þess að fjölga sér all gríðarlega.

Fjölmargir íbúar hafa kvartað til Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, eftirlitsmenn þaðan hafa komið til að skoða ýmsar sorphirslur og komið athugasemdum á framfæri við bæjaryfirvöld.

Nú er sorpflokkunartilraunin orðin rúmlega eins árs og tími kominn á endurskoðun. Það er mat fjölmargra að núverandi skipulag sé ekki að virka þar sem mánaðarlöng geymsla sorps sé óviðunandi. Það er hagur allra sem hafa skoðun á þessu máli að koma eigin athugasemdum á framfæri til bæjaryfirvalda.

Allir flokkar segjast vilja aukna aðkomu íbúa að skipulagsmálum

maí 28th, 2010 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Betri byggð á Kársnesi sendi 5 spurningar á stjórnmálaflokkana vegna kosninganna.

Svör bárust frá öllum nema Framsóknarflokki. Á vef BBK má lesa svör framboðanna.

Leiðrétting frá Íslenska gámafélaginu

apríl 22nd, 2010 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Íbúasamtökin höfðu samband við Íslenska gámafélagið í kjölfar aðalfundar samtakanna þar sem vakin var athygli á markpósti þar sem tilgreind var upphæð fyrir grænar tunnur. Íslenska gámafélagið sendi eftirfarandi leiðréttingu.
» Read more: Leiðrétting frá Íslenska gámafélaginu

Aðalfundur

apríl 12th, 2010 ritaði Íbúasamtökin No comments »
Aðalfundur
Íbúasamtökin Betri Nónhæð
boða til aðalfundar:
miðvikudaginn 14. apríl.
klukkan 20:00.
í fundarsal Smáraskóla.
Dagskrá aðalfundarins
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar
Reikningar
Breytingar á samþykktum
Kosning stjórnar
Kosning skoðunarmanna
Önnur mál
Kynning á nýjum tillögum KS verktaka að byggð á Nónhæð
Kynning á vefsíðu íbúasamtakanna Betri Nónhæð
Tillaga að ályktun aðalfundar

Betri Nónhæð

Aðalfundur

Íbúasamtökin Betri Nónhæð boða til aðalfundar miðvikudaginn 14. apríl 2010 klukkan 20:00 í fundarsal Smáraskóla.

Dagskrá aðalfundarins

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar
  • Reikningar
  • Breytingar á samþykktum
  • Kosning stjórnar
  • Kosning skoðunarmanna
  • Önnur mál
    • Kynning á nýjum tillögum KS verktaka að byggð á Nónhæð
    • Kynning á vefsíðu íbúasamtakanna Betri Nónhæð
    • Tillaga að ályktun aðalfundar

Viðhengi: Fundarboð og skýrsla stjórnar

Hver fer með skipulag Nónhæðar?

september 14th, 2009 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Ágæti íbúi Nónhæðar

Kristján Snorrason hefur, fyrir hönd KS-verktaka, boðað íbúa Foldarsmára 2-22 til „samráðsfundar um skipulag Nónhæðar“¹. Boð Kristjáns um samráð er merkingarlaust nema hann ráði skipulagi Nónhæðar².

Samkvæmt Skipulags- og byggingarlögum fer skipulagsnefnd með skipulagsmál undir yfirstjórn sveitarstjórnar. Stjórn samtakanna Betri Nónhæð hefur átt fund með sviðsstjóra Skipulags- og umhverfissviðs Kópavogs um skipulagsmál svæðisins. Nýlega óskaði sviðsstjórinn eftir framhaldi viðræðna. Stjórnin tók ósk sviðsstjórans vel en með ákveðnum fyrirvörum þó. Þrátt fyrir þetta
boðar Kristján Snorrason samráðsfund um skipulag Nónhæðar með íbúum Foldarsmára 2-22. Af þessum sökum hyggst stjórn samtakanna kanna hjá skipulagsyfirvöldum Kópavogs hvort Kristján Snorrason:

  1. Hafi umboð Bæjarstjórnar eða Skipulagsnefndar Kópavogs til að fara með skipulag Nónhæðar í samráði við fundarmenn?
  2. Vinni skipulag Nónhæðar í samráði við fundarmenn, með þegjandi samþykki Bæjarstjórnar eða Skipulagsnefndar Kópavogs?
  3. Vinni skipulag Nónhæðar með velþóknun Bæjarstjórnar eða Skipulagsnefndar Kópavogs í samráði við fundarmenn?
  4. Auglýsi, átölulaust af hálfu Bæjarstjórnar eða Skipulagsnefndar Kópavogs, að hann leiti ráða hjá fundarmönnum og hyggist breyta skipulagi Nónhæðar ef honum geðjast ráð þeirra?
  5. Hafi loforð skipulagsyfirvalda í Kópavogi um að breytingar á aðalskipulagi verði auglýstar þrátt fyrir að skilyrði 5. málsliðar 16. greinar Skipulags og byggingarlaga³ séu ekki uppfyllt?

Fyrir hönd stjórnar samtakanna Betri Nónhæð
Ásmundur Hilmarsson

1) Sjá viðhengi: KS fundarbod 090908.
2) „Allt land innan Fífuhvammsvegar, Smárahvammsvegar og Arnarnesvegar er
talið með í flatarmáli Nónhæðar.“, Aðalskipulag Kópavogs 2000-2012, bls 18
3) „Þegar að loknum sveitarstjórnarkosningum metur sveitarstjórn hvort
ástæða sé til að endurskoða aðalskipulagið. Um málsmeðferð á endurskoðaðri
áætlun fer sem um gerð nýs aðalskipulags væri að ræða.“

Ólafsvíkuryfirlýsingin

september 12th, 2009 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Á fundi bæjarstjórnar þann 28. júlí var einróma samþykkt að fela bæjarstjóra að undirrita Ólafsvíkuryfirlýsinguna. Með því að samþykkja hana heitir bæjarstjórnin því að leggja sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar, meðal annars með því að virkja íbúa, félagasamtök og aðra í verkefnum sem tengjast Staðardagskrá 21.

Það er einlæg von íbúanna að bæjaryfirvöld standi við þetta og hafi samráð við íbúa og félagasamtök þeirra, það er engin tilviljun að íbúasamtök hafa risið upp í Kópavogi undanfarin ár vegna einhliða ákvarðana bæjaryfirvalda.

Kynningarfundur vegna Glaðheima

júní 28th, 2009 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Sæl öll

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá auglýsti skipulagsstjóri Kópavogs, í dagblöðunum á laugardag, kynningarfund vegna Glaðheimasvæðisins n.k. þriðjudag.

Að vanda sjá þeir (fulltrúar Kópavogsbæjar) sér ekki annað fært en að auglýsa jafn mikilvægar breytingar á skipulagi þegar flestir eru farnir í sumarfrí.

Fyrir nokkrum dögum síðan rann út frestur til þess að gera athugasemdir við skipulagið og nú á að kynna öll herlegheitin, 30 hæða turn með meiru.

Glaðheimasvæðið er ekki bara umhugsunarefni fyrir íbúa Lindarhverfis heldur einnig alla þá sem búa í og við Kópavogsdalinn.

Ég hvet alla sem eiga kost á því að, mæta á fundinn og gera athugasemdir við þessar „kreppu hugmyndir“.

Kv. Árni Jónsson

Ráðstefna Skipulagsstofnunar

maí 8th, 2009 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Ráðstefna Skipulagsstofnunar 30. apríl 2009 um skipulag borga/bæja með manninn í öndvegi, sem Skipulagsstofnun stóð fyrir þann 30.apríl 2009 –  Að móta byggð –  er komin á vef Skipulagsstofnunar.  Sjá hér næst.

http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/key2/index.html?OpenDocument

Ráðstefnan var mjög forvitnileg og vert að skoða alla fyrirlestrana.  Þó vil ég sérstaklega benda á fyrirlestur Steffen Gullman stofnanda 11City-Design.  Hann talaði út frá því að skipuleggja yrði borgir/bæi út frá íbúum hverrar borgar fyrir sig.  Annað gengi aldrei upp.   Sjá hér næst.

http://www.skipulag.is/focal/webguard.nsf/Attachment/SG_Island_maj2009/$file/SG_Island_maj2009.pdf

Skoðið þetta endilega.  Ráðstefnan var mjög vel heppnuð og gott að hún er öll inná vefnum.

Jarðrask á Nónhæð

nóvember 28th, 2008 ritaði Íbúasamtökin No comments »

Komið þið sæl öll.

Það eru e.t.v. margir sem hafa séð jarðrask það sem er á Nónhæð hjá leikskólanum.  Þarna ætluðu KS verktakar ehf. að gera geymslusvæði fyrir vinnuvélar og ýmis tæki.  Ekki þarf að taka það fram að þetta er algjörlega ólöglegt og hefur byggingafulltrúi stoppað þessar framkvæmdir.

Send hafa verið formleg mótmæli inn á fund Bæjarráðs með vísan í gildandi aðalskipulag og var það erindi tekið fyrir fimmtudaginn 27. nóvember 2008 eftir því sem best er vitað.  Þar er þessu jarðraski harðlega mótmælt og farið fram á að verktakanum verði gert at slétta úr og tyrfa svæðið.

Beðið er niðurstöðu frá þessum fundi en hægt verður er að skoða fundargerð bæjarráðs á vef Kópavogsbæjar.  Við munum senda til ykkar niðurstöðu bæjarráðsfundarins og hvaða afgreiðslu þetta mál fær í framhaldinu.

Einnig viljum við benda fólki sem áhuga hefur á skipulagsmálum að hlusta á þátt sem heitir Krossgötur og er á rás 1 í Ríkisútvarpinu  kl 13:00 nk laugardag 29. nóvember.  Þar verður fjallað um skipulagsmál og íbúasamtök.  Einnig er hægt að hlusta á þennan þátt og eldri þætti á vefútvarpi ríkisútvarpsins.  Mikið hefur verið fjallað um skipulagsmál í þessum þætti.

Bestu kveðjur

Guðrún Benediktsdóttir
Formaður íbúasamtakanna Betri Nónhæð