Sæll Smári …og takk fyrir þetta.
Þetta svar snýr eingöngu að Svæðis- og Aðalskipulagi! Spurningin er hver hefur afgreiðsla Deiliskipulagstillagna svæðanna/lóðanna verið og hvað þýða þær afgreiðslur?
Kv.Árni
From: Smári Smárason [mailto:smaris@kopavogur.is]
Sent: 6. júlí 2007 08:55
To: Árni og Sigga Foldarsmára 6
Subject: RE: Nónhæð og Arnarsmári
Komið sæl.
Svæðis og Aðalskipulaga fyrir umrædd svæðið hefur ekki verið samþykkt í bæjarstjórn.
Til þess að auglýsa megi skipulag þarf ekki aðeins að fá leyfi sveitarstjórnar til að auglýsa heldur einnig samþykki skipulagsstofnunar. Nú hafa bæjaryfirvöld samþykkt að bíða eftir að fá athugasemdir frá íbúum til að geta fullmótað tillögur sem síðan fara í nýtt ferli í skipulagsnefnd.
Kveðj a Smári
From: Árni og Sigga Foldarsmára 6 [mailto:fs6@simnet.is]
Sent: 5. júlí 2007 00:14
To: Smári Smárason
Subject: Nónhæð og Arnarsmári
Sæll Smári,
Hér er stutt spurning sem sett er fram á heimasíðunni. Hefur þú ekki tök á því að svara henni?
Kv.Árni
Samþykkt eða ekki samþykkt?!
Eftir kynningarfundinn í síðustu viku ríkir nokkur óvissa um stöðu þeirra deiliskipulagstillagna sem kynntar hafa verið af Nónhæðinni og Arnarsmára 32.
Það kemur skýrt fram að bæjarstjórn (sem hefur síðasta orðið) er þegar búin að samþykkja deiliskipulag lóðar við Arnarsmára 32 sbr. fundargerð þann 22. maí 2007.
Hvað þýðir sú samþykkt???
Þá hefur bæjarráð samþykkt breytingu á svæðisskipulagi, aðalskipulagi og deiliskiplagi Nónhæðar! Hvað felur það í sér???
Það er rétt að skipulagsstjóri bæjarins gefi okkur íbúum skriflega skilgreiningu/útskýringu á því sem samþykkt hefur verið þannig að íbúar skilji það sem við er átt (þessu verður komið til skipulagsstjóra!).