Sarpur fyrir ‘Nónhæð’ flokkur

Skipulagsgögn komin

júní 27th, 2007

Kópavogsbær hefur nú birt skipulagsgögnin fyrir Arnarsmára 32 og Nónhæð. Hér má sjá helstu myndirnar úr gögnunum.  Gögnin í heild er hægt að nálgast hjá bæjarskipulagi eða hér (Arnarsmári eða Nónhæð).

Arnarsmári 32 (smellið á mynd til að fá betri útgáfu)Arn32_Skipulag1

Nónhæð (smellið á mynd til að sjá stærri útgáfu)

Nonh_litil

Íbúafundur v. kynningar á tillögum að deiliskipulagi

júní 22nd, 2007

Í morgun barst tilkynning inn um lúguna frá Bæjarskipulagi Kópavogs.  Þeir ætla að blása til íbúafundar þann 28. júní n.k. kl. 17:30 í Smáraskóla.
Eins og segir í tilkynningunni á að kynna tillögur sem eru til umræðu í skipulagsnefnd en bæjarstjórn/bæjarráð hefur þegar samþykkt þær og þeir hafa lokavaldið!

Við hvetjum alla íbúa til þess að mæta á fundinn og vera með málefnalega umræðu um málið!!

Því miður verður sennilega ekki hægt að setja gögn um tillögurnar inn á síðuna fyrr enn á mánudagskvöld þar sem þau eru ekki aðgengileg hjá skipulaginu eins og er nema á pappírsformi.

Þeir sem lesa þessa síðu eru hvattir til þess að láta nágranna vita af henni því hér má nálgast upplýsingar.

Aðkoma íbúa

júní 17th, 2007

Á heimasíðu Kópavogsbæjar/bæjarskipulags er mjög athyglisverð slóð yfir á heimasíðu í Bretlandi, sjá tengil hér hægra megin á síðunni (About community planning).  Þar er m.a. fjallað um aðkomu íbúa að skipulagsmálum og m.a. er eftirfarandi setning í fyrirsögn á síðunni:
„If you want to know how the shoe fits, ask the person who is wearing it, not the one who made it.“
Þetta er einkar athyglisvert í ljósi þeirrar áforma sem uppi eru um byggð á Nónhæð og Arnarsmára 32.

Fyrirhugaður fundur

júní 15th, 2007

Heyrst hefur að bæjaryfirvöld vilji ræða við íbúa í Smárahverfi vegna fyrirhugaðrar breytingar á skipulagi og byggingarframkvæmda, þann 28. júní n.k.  Við hvetjum alla íbúa svæðisins til þess að mæta á fundinn til að heyra hvað bæjaryfirvöldum gengur til.
Við þurfum síðan að setjast niður og yfirfara þær upplýsingar sem fram koma á fundinum og munum óska eftir framhaldsfundi síðar þegar við höfum farið yfir málið í næði og þá munum við leggja fram okkar gögn.
Nánari upplýsingar verða gefnar hér á síðunni síðar.

Hávaðaútreikningar

júní 15th, 2007

Þann 15.júní fékk vefari í hendur minnisblað unnið af VST um hávaðareikninga fyrir Nónhæð.  Sjá nánar Nonhaed_VST_MB-2007-03-30_SvS.

Íbúar taka sig saman

júní 7th, 2007

Óformlegur fundur var haldinn með Árna Jónssyni (vefara) og nokkrum íbúum Brekkusmára þar sem farið yfir stöðu mála.  Áður var vefari búinn að vera í sambandi við nokkra íbúa Foldarsmára um málið.  Ákveðið var að útvega fleiri gögn áður en gengið yrði í hús í öllu hverfinu og málefnið kynnt.

Viðtal við Gunnar

maí 26th, 2007

Þann 28. apríl s.l. átti Hjálmar Sveinsson dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu viðtal við Gunnar I. Birgisson bæjarstjóra í Kópavogi.  Í viðtalinu nefndi hann m.a. að bærinn væri að gera átak í útivistarsvæðum og að þeir reyndu að koma háhýsum niður í dalina.
Þetta viðtal var mjög athyglisvert í ljósi þess sem til stendur að gera á Nónhæð.  Viðtalið má hlusta á hjá ruv.is á podcasti/hlaðvarpi. Grípum hér niður í viðtalið:

….. Þetta er náttúrlega ekki okkar sýn á málin, við höfum kappkostað það í okkar skipulagi, okkar nýju svæðum, að það er að blanda saman byggðinni, bæði sérbýli og fjölbýli, og hafa lágreista byggð og líka s.k. púll? byggingar eða turna, sem eru afar vinsælir og þegar við fórum fyrst við Reykjanesbrautina þá vorum við ekki með bílastæðahús en nú fylgir bílastæðahús nánast öllum þessum fjölbýlishúsum þannig að það sem það passar höfum við sett þessa turna.  Ég kannast ekki við að það sé neitt bílastæðaflæmi nema þá við Smáralind, það var nú gert til að það yrði nú gott aðgengi og annað fyrir það.  Annars er með marga arkitekta að þeir virðast nú hafa einkarétt á lögildum smekk á skipulagi.  Við erum að reyna að vanda þetta…..


…… Það er ekkert annað sveitarfélag með eins mikið af opnum svæðum inni í íbúðarsvæðum heldur en við og á nýjum svæðunum, þá ætlum við að gera enn betur þar sem við verðum með stærsta heilstæðasta svæðið með skógrækt upp á eina 10 hektara inni í miðju íbúðarsvæði, þannig að við höfum og líka reynt að hafa mikið af göngustígum og annað slíkt og höfum látið það fylgja uppbyggingunni strax, og einnig náttúrulega þjónusta, grunnskólana og leikskólana og íþróttamannvirki, þetta kemur allt með uppbyggingunni og þessi góða þjónusta og annað hefur náttúrulega orsakað það að við erum vinsælt bæjarfélag.

Fyrstu fréttir

maí 25th, 2007

Skömmu fyrir alþingiskosningarnar í maí s.l. fréttu nokkrir íbúar Foldarsmára af því að til stæði að hefja umfangsmiklar byggingarframkvæmdir á Nónhæð.  Kom þetta m.a. fram á teikningum af lóðinni sem borist höfðu en einnig staðfesti Ármann Kr. Ólafsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og forseti bæjarstjórnar það í samtali við vefara.

Skömmu eftir kosningar hafði vefari samband við Smára Smárason Skipulagsstjóra Kópavogs og fór yfir hugmyndir að uppbyggingu á Nónhæð en einnig gat hann um fyrirhugaðar byggingar á reit bensínstöðvarinnar.  Í leiðinni nefndi hann umfangsmikla uppbygginu sem væri verið að skipuleggja á svæði meðfram Reykjanesbraut og hér væri verið að skipuleggja miðju höfuðborgarsvæðisins.  Það mátti skilja að þarna ættu eftir að koma stórar byggingar og sennilega flestar þeirra upp í loftið.

Vefari fékk eingöngu að sjá gögnin en afrit fékkst ekki.