Síðastliðið fimmtudagskvöld var haldinn fundur íbúa Smárahverfis ofan Fífuhvammsvegar. Málefni fundarins voru tillögur skipulagsyfirvalda bæjarins um byggingar á Nónhæð og Arnarsmára 32 ásamt stofnun íbúasamtaka.
Fjölmenni var á fundinum og mikil samtaða um að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á núgildandi Aðalskipulagi svæðisins.
Á seinnihluta fundarins var kosin stjórn íbúasamtaka í Smárahverfi ofan Fífuhvammsvegar. Markmið samtakanna er að standa vörð um Aðalskipulag Nónhæðar þar sem hagsmunir íbúa svæðisins verða hafðir að leiðarljósi.
Ljósmynd: Helgi J. Hauksson